Auglýsingar

Tek að mér morgungjafir og jafnvel seinnipartsgjafir líka, verð er samkomulagsatriði.

Einnig tek ég að mér að hreyfa hesta. Ég er tvítug og ágætlega vön hestum.

Kveðja,
Hafdís Bára Gsm: 868-8735

Click for Akureyri, Ísland Forecast Click for Akureyri, Ísland Forecast

Forsíða
Sölusýning 5. sept. Hliðarholtsvelli. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Miðvikudagur, 08 september 2010 08:36

Sölusýning 5. sept. 2010 ´

Hér eru upplýsingar um hrossin sem sýnd voru á Sölusýningu Léttis 5. september.

Lesa meira...
 
Bæklingar frá ÍSÍ Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Þriðjudagur, 07 september 2010 09:49

ÍSÍ hefur nú gefið út tvo nýja fræðslubæklinga. Annars vegar er um að ræða bæklinginn „Íþróttir – félagslega hliðin" og hins vegar bæklinginn „Íþróttir – foreldrar og börn". Fyrrnefndi bæklingurinn fjallar um mikilvægi félagslegu hliðar íþróttastarfsins og hinn síðarnefndi um hlutverk foreldra hvað snertir íþróttaiðkun barna. Bæklingunum er ekki ætlað að vera tæmandi upplýsingar um efnið heldur leiðbeinandi þáttur sem vonandi leiðir til frekari umræðu um mikilvægi efnisins. Bæklingarnir verða gefnir út í netútgáfu til að byrja með og má nálgast þá á www.isi.is/pages/umisi1/efnisveita/fraedslurit/fraedslubaeklingarisi1/

Við hvetjum alla til að lesa þessa bæklinga.

Með bestu kveðju

ÍSÍ

 
Gæðingamót Léttis og Goða, úrslit Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Sunnudagur, 05 september 2010 17:05

Í dag voru riðin úrslit í Gæðingakeppni Léttis og Goða. Frábært veður var í dag og voru mjög sterkir hestar í úrslitum og mjótt var á munum.

 

Fanndís Viðarsdóttir hlaut Djáknabikarinn i þetta sinn. Djáknabikarinn er bikar sem Magnús Rúnar Árnason, Árni Gísli og Brynjar Logi Magnússynir gáfu til minningar um Djákna frá Dalvík, hest sem þeir kepptu allir á og var mjög sigursæll á sínum ferli.  

fanndis_djaknabikar

 

Þóra Höskuldsdóttir hlaut Þytsbikarinn. Bikarinn hlýtur það barn eða unglingur sem hlýtur hæstu einkunn í forkeppni.

Þytsbikarinn er bikar gefinn af Dýraspítalanum í Lögmannshlíð í minningu Þyts frá Krossum. Bikarinn er gefinn fyrir prúðmannlega reiðmennsku og stundvísi. Eru þessar stúlkur vel að þessum verðlaunum komnar.

thora_thytsbikarinn 

Hér eru úrslitin :

 

Lesa meira...
 
Gæðingakeppni Léttis og Goða Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Laugardagur, 04 september 2010 22:31

Gæðingakeppni Létti og Goða var haldin í blíðskapaveðri í dag. Mikið var um góða hesta og gekk mótið ágætlega.

 

Hér koma niðurstöður eftir forkeppni og úrslit úr tölti fullorðinna og skeiði.

 

Lesa meira...
 
Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Þriðjudagur, 17 ágúst 2010 22:11

Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna var haldið á Hvammstanga 12-15 ágúst í blíðskapaveðri. Mótið gekk í allastaði vel og átti Léttir 4 keppendur á mótinu og stóðu þau sig öll með prýði. Að sögn þátttakenda var stemmingin góð og móttökurnar frábærar og hlakkar þau til að mæta fersk á Íslandsmót að ári.

 

Lesa meira...
 
Hættur á reiðleiðum á Akureyri Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Fimmtudagur, 12 ágúst 2010 20:57

Kvartanir hafa borist vegna spotta sem hestamenn í rekstri eru að skilja eftir. Þegar farið er í rekstra og spottar notaðir er það nauðsynlegt að taka spottana niður þegar reksturinn er farinn framhjá.

Nú er farið að skyggja á kvöldin og stafar mikil hætta fyrir aðra hestamenn af spottunum.

Vinsamlega sýnum tillitsemi og göngum vel um.

Stjórnin.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 51

Merki Léttis

Á döfinni


There are no upcoming events currently scheduled.
Skoða dagatal
Júlí 2010 ágúst 2010 September 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

Póstlistaskráning

Tengdir notendur

Það er/u 764 gestir inni
Joomla 1.5 Templates by JoomlaShine.com