|
Slaktaumatölt og skeið, ráslisti |
|
|
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Föstudagur, 19 mars 2010 20:57 |
|
Næstkomandi fimmtudag, 25. mars er komið að síðasta kvöldinu í KEA mótaröðinni. Mótaröðin hefur gengið frábærlega vel og gaman hefur verið að fylgjast með þessari keppni.
Í þetta sinn verður keppt í slaktaumatölti og skeiði. Er þetta í fyrsta sinn sem keppt er í slaktaumatölti í Top Reiter höllinni. Búist er við æsispennandi keppni og frábærum skeiðhestum sem alltaf er gaman að horfa á.
Greiða þarf skráningargjaldið fyrir miðvikudaginn 24. mars svo skráningin sé gild. Nauðsynlegt er að fram komi kennitala knapa og IS númer hests og í hvaða grein er verið að skrá í.
Skráningargjöld 2500 kr. á að greiða inn á reikning 0302 - 26 -15840 kt: 430269-6749 og setja nafn knapa sem skýring.
Keppnin hefst kl. 19:00, knapafundur er kl. 18:00. Húsið opnar kl. 18:30 og kostar 500 kr. inn.
Að móti loknu verður boðið uppá léttar veitingar.
T2 og skeið - ráslisti |
|
|
KEA mótaröðin fimmgangur, úrslit |
|
|
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Föstudagur, 12 mars 2010 09:21 |
|
Þriðja kvöldið var haldið í gær í KEA mótaröðinni. Mótið gekk vel fyrir sig og var ágætis þátttaka.
Áhorfendur skemmtu sér vel við að horfa á fallega alhliðahesta.
Þorbjörn Hreinn sigraði b úrslitin á Tý frá Litla Dal með einkunnina 6,36. Mikil spenna var í a úrslitunum og sigraði Baldvin Ari Guðlaugsson að lokum á Orradótturinni Krækju frá Efri - Rauðalæk með einkunnina 7,05
Eftir kvöldið er Ásdís Helga orðin efst með 21 stig en fast á hæla hennar kemur Viðar Bragason með 20 stig og þá Baldvin Ari með 18 stig.
Niðurstöður mótsins eru:
Fimmgangur - forkeppni
Fimmgangur - B úrslit
Fimmgangur - A úrslit
|
|
Lesa meira...
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Þriðjudagur, 09 mars 2010 08:58 |
|
Fín þátttaka er í fimmgangi og eru 24 keppendur eru skráðir til leiks.
Keppnin hefst klukkan 19:00 fimmtudaginn 11. mars.
Húsið opnar kl. 18:30 og kostar 500. kr inn.
Knapafundur er kl. 18:00
Hér er uppfærður ráslisti |
|
Skrifað af Andrea
|
|
Föstudagur, 26 febrúar 2010 09:35 |
Annað kvöldið í KEA mótaröðinni var haldið í gærkveldi og var mikil og góð stemming í húsinu. 42 keppendur voru skráðir en 37 mættu til leiks. Mótið gekk hratt og vel og ber að þakka knöpum, dómurum og riturum kærlega fyrir frábært kvöld. Góðir hestar voru í báðum úrslitum og sigruðu Viðar Bragason og Von frá Syðra - Kolugili b úrslitin með einkunnina 6,73. Þau gerðu sér lítið fyrir og sigruðu einnig a úrslitin með einkunnina 6,93. Óskum við Viðari og Von til hamingju með sigurinn.
Hér eru upplýsingar úr forkeppninni og úrslitum:
Fjórgangur - forkeppni
Fjórgangur - B úrslit
Fjórgangur - A úrslit
Það eru komnar inn myndir úr KEA mótaröðinni undir flipanum "myndasíða"
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 3 |