Tek að mér að hreinsa og fjarlægja sullið úr gerðum og get skaffað gott efni í yfirlag. Leyfið hrossunum að njóta sín úti. Þorbergur (Tobbi) s 8624991. |
| Framkvæmdafréttir |
|
|
|
| Miðvikudagur, 30 júní 2010 13:07 |
|
Nú er verið að leggja lokahönd á „rekstrar gerðið" í Breiðholti og er óhætt að segja að þetta er glæsilegt mannvikri og mikill sómi af. Við viljum biðja þá sem nota gerðið að skilja hross ekki eftirlitslaus í gerðinu og varna því eftir bestu getu að hrossin nagi ekki timbrið. Okkur langar að þakka öllum þeim sem komu að smíðinni kærlega fyrir framkvæmdina.
5 vinnuskóla krakkar eru hjá Létti núna og eru þau búin að mála reiðgerðið í Breiðholti ásamt því að bera á hringgerðið, þau eru einnig búin að bera á réttirnar við flugvöllinn og á Kaupvangsbökkum. Í dag ætla þau í Höskuldsstaði og Laugaland að bera á réttarnar þar. Í framhaldi af því ætla þau að bera á hringgerðið í Lögmannshlíð og fara svo í önnur verkefni sem ekki hafa verið ákveðin. Ef þú hefur tillögu af því hvað þarf að gera þá endilega sendu línu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Einnig viljum við nota tækifærið og þakka Höskuldi og Elfu fyrir rausnarlega gjöf en þau gáfu Létti rotþró sem sett var niður á Sörlastöðum. Með sumar kveðju Stjórnin |