| Tek að mér ungfola í fóðrun í vetur.
Allar nánari upplýsingar eru hjá Kristmundi í síma 845 6119
|
| Reiðnámskeið Káts og Léttis |
|
|
|
| Miðvikudagur, 16 júní 2010 09:27 |
|
Reiðskóli Léttis verður í sumar í samvinnu við hestaleiguna Kát. Léttir hefur verið í samstarfi við Kát undanfarin ár og hefur vel tekist til. Hvert námskeið er fimm dagar frá mánudegi til föstudags og hefst alla daga kl 8.00 og stendur til kl 12.00. Byrjendahópur er fyrir þá sem hafa litla sem enga reynslu af hestum og er byrjað á að kenna undirstöðuatriði í umgengni við hesta sem og í reiðmennsku. Í framhaldi er svo kennd áseta og stjórnun. 21. til 25. júní reiðnámskeið fyrir krakka 4 til 6 ára 28. júní til 3. júlí örfá pláss laus 28. júní til 3. júlí fyrir krakka sem hafa komið á mörg námskeið eða krakka sem eru vön. Byggist fyrst og fremst á reiðtúrum, þessi námskeið kosta 10.000 kr. Fyrir allra yngstu krakkanna (leikskólabörn) er hægt að panta hjá okkur og er þá teymt undir þeim. Ef systkini skrá sig þá er 30% afsláttur af öðru gjaldinu. Hægt er að nota ávísanirnar frá Akureyrarbæ uppí námskeiðisgjöld.Krakkarnir verða að klæða sig eftir veðri en við útvegum allan þann búnað sem þarf svo sem hjálma og öryggisvesti. Námskeiðin eru eins og oftast áður á Kaupangsbökkunum sem er ca. 5 mín akstur frá miðbæ Akureyrar. Krakkarnir verða að koma með nesti alla dagana nema föstudaga en þá grillum við fyrir þau. Hulda Lillý Sigurðardóttir leiðbeinandi frá Hólaskóla stjórnar námskeiðunum ásamt öðrum. Námskeið fyrir krakka 4 til 6 ára eru einnig fyrirhuguð í sumar sem og framhaldsnámskeið fyrir krakka sem eru töluvert vön. Nánari upplýsingar og skráning er í síma 695 7218 eða á netfangi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. |