|
Er með 5 vetra meri til sölu, rauðskjótta faðir Valur frá höskuldstöðum og móðir hennar var Ösp frá Naustum 2 sem var undan honum Snældu-blesa frá Árgerði. Merin er litið gerð en viljug. Hún er i tamningu eins og er hjá honum Atla Fúsa í breiðholtinu. Er til að skoða skipti á fjölskylduhesti/meri. Nánar upplýsingar hjá Rósu í sima 8686853. |
| Reiðhöll Léttis |
|
|
|
| Mánudagur, 18 febrúar 2008 13:25 |
|
Bygging reiðhallar hestamannafélagsins Léttis er á lokastigi og er áætlað að taka húsið í notkun í febrúar á þessu ári. Lokið verður við að ganga frá því nauðsynlegasta s.s. reiðsvæði og grindverki í kring um það, áhorfendapöllum og salernisaðstöðu áður en reiðhöllin verður opnuð. Seinna verður komið upp glæsilegri félagsaðstöðu og samkomusal á efri hæð í suðurenda hússins og hesthúsi þar fyrir neðan. Reiðhöllin er öll hin glæsilegasta og setja límtrésbitar skemmtilegan og hlýlegan blæ á húsið sem verður hið stærsta sinnar tegundar á landinu eða 2880 fermetrar með 28 x 70 metra reiðsvæði. Fyrsta skóflustungan að reiðhöllinni var tekin af þáverandi bæjarstjóra Kristjáni Þór Júlíussyni í september 2006 en húsið tók að rísa frá grunni sumarið 2007. Síðan þá hefur mikil vinna farið í ýmsan frágang og hafa félagsmenn Léttis unnið í sjálfboðavinnu við hina ýmsu verkþætti. Má segja að yfir 20 ára gamall draumur hestamanna á Akureyri sé loksins að verða að veruleika. Með tilkomu reiðhallarinnar mun aðstaða til þjálfunar og kennslu í hestamennsku gjörbreytast og geta Akureyringar þá loksins státað af aðstöðu sem eru sambærileg við það sem hestamenn víðast hvar á landinu búa við. Það er næsta víst að þessi aðstaða mun verða gríðarleg lyftistöng fyrir hestamennsku á svæðinu. Fagfólk mun laðast hér að og fagmennska aukast í greininni, sýningar, námskeiðahald og æskulýðsstarf mun blómstra svo fátt eitt sé nefnt. Kostnaður við reiðhöllina fram að þessu nemur um 150 milljónum króna. Akureyrarbær hefur komið myndarlega að byggingu reiðhallarinnar og hefur greitt um 80% af kostnaði fram að þessu, sérstakt ríkisframlag til eflingar hestamennsku á landsbyggðinni sem landbúnaðarráuneytið stóð að dekkar um 20% af kostnaði. Þess ber að geta að KEA lagði til 2,5 milljónir og auk þess hafa ýmiss fyrirtæki og einstaklingar lagt hönd á plóginn. Einnig er hægt að sjá myndir að uppbyggingu reiðhallarinnar á myndasíðu Léttis. |