|
Skrifað af Andrea
|
|
Fimmtudagur, 05 ágúst 2010 22:50 |
|
Að gefnu tilefni vill haganefnd árétta við alla þá sem nota næturhólfið á Bökkunum að láta umsjónarmann hólfsins vita þegar setja á hross í hólfið. Umsjónarmaður er Magnús Rúnar í s: 899 6296.
Einnig skal það áréttað að bannað er að skilja hross eftir í "þríhyrningnum" yfir nótt, það hólf er aðeins til áningar í stutta stund og undir eftirliti.
Með kveðju, Haganefnd. |
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Mánudagur, 26 júlí 2010 21:42 |
|
Hvernig væri að skella sér á Vesturlandið og ríða í Dalina.
Ábúendur að Seljalandi í Hörðudal ætla að taka á móti fólki og hestum í allt sumar. Eru með svefnaðstöðu fyrir allt að 12-16 manns inni, og einnig er tjaldsvæði með snyrtingum og vaskaborði til uppþvotta .
Hægt er að panta með fyrirvara kjötsúpu eða grill fyrir þreytta ferðalanga, uppábúin rúm og morgunmat
Nánari upplýsingar í síma: 894 2194 / 434 1116 eða í netfangi:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Níels Sigurður og Ragnheiður.
|
|
Skrifað af Inga Bára
|
|
Sunnudagur, 25 júlí 2010 23:24 |
|

Dagana 31. júlí- 1. ágúst verða haldnir opnir Bjargarleikar
- Tölt opinn flokkur
- Fjórgangur opinn flokkur
- Fimmgangur opinn flokkur
- 100 metra skeið
- Tölt opinn flokkur 15ára og yngri.
Skráning fer fram á netfangið:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og síðasti skráningardagur er miðvikudagur kl. 21.
Skráningargjald er 2000kr. Á fyrsta hest og 1000 á næsta.
1000kr fyrir 15ára og yngri.
Grill í Bjargarhöllinni á laugardagskvöldið. (kreppuverð)
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Laugardagur, 24 júlí 2010 00:37 |
|
Að gefnu tilefni vill Sörlastaðanefnd minna þá á sem heimsækja Sörlastaði að það þurfa allir að þrífa eftir sig.
Umgengin hefur ekki verið eins góð og hún þarf að vera til að halda Sörlastöðum eins góðum og við viljum hafa þá.
Með kveðju,Sörlastaðanefnd. |
|
Félagsferð Léttis FELLD NIÐUR ! |
|
|
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Fimmtudagur, 01 júlí 2010 08:45 |
|
Vegna ástandsins höfum við ákveðið að fella niður fyrirhugaða félagsferð Léttis í Bárðardal.
Við munum gera eitthvað skemmtilegt að ári.
Ferðanefnd Léttis. |
|
Skrifað af Andrea
|
|
Miðvikudagur, 30 júní 2010 13:07 |
|
Nú er verið að leggja lokahönd á „rekstrar gerðið" í Breiðholti og er óhætt að segja að þetta er glæsilegt mannvikri og mikill sómi af. Við viljum biðja þá sem nota gerðið að skilja hross ekki eftirlitslaus í gerðinu og varna því eftir bestu getu að hrossin nagi ekki timbrið. Okkur langar að þakka öllum þeim sem komu að smíðinni kærlega fyrir framkvæmdina.
5 vinnuskóla krakkar eru hjá Létti núna og eru þau búin að mála reiðgerðið í Breiðholti ásamt því að bera á hringgerðið, þau eru einnig búin að bera á réttirnar við flugvöllinn og á Kaupvangsbökkum. Í dag ætla þau í Höskuldsstaði og Laugaland að bera á réttarnar þar. Í framhaldi af því ætla þau að bera á hringgerðið í Lögmannshlíð og fara svo í önnur verkefni sem ekki hafa verið ákveðin. Ef þú hefur tillögu af því hvað þarf að gera þá endilega sendu línu á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Einnig viljum við nota tækifærið og þakka Höskuldi og Elfu fyrir rausnarlega gjöf en þau gáfu Létti rotþró sem sett var niður á Sörlastöðum.
Með sumar kveðju
Stjórnin |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 51 |