|
KEA mótaröðin Tölt úrslit |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 12 febrúar 2010 10:19 |
|
Fyrsta kvöldið í KEA mótaröðinni tókst með eindæmum vel. Góð mæting var af áhorfendum og var þátttaka keppenda góð. 37 hestar voru skráðir til leiks og var svolítið leikið sér með tölulegar staðreyndir. Þess má geta að það voru 13 brún hross, 11 rauð, 7 jörp, 2 bleik, 2 leirljós og 2 grá. Samanlagður aldur hestanna var 320 ár og meðalaldurinn var þá 8,64 ár. 9 konur voru skráðar til leiks og 22 karlar, af þessum knöpum átti Hringur 4 knapa, Funi 6, Þytur 1 og Léttir 26.
Góð stemming var í húsinu og megum við til með að hrósa keppendum og dómurum fyrir frábært mót sem náðist að keyra í gegn á ótrúlega góðum tíma.
Hér eru niðurstöður kvöldsins:
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 05 febrúar 2010 11:40 |
Opna Bautamótið í tölti 2010 verður haldið laugardaginn 20. febrúar n.k. í Skautahöllinni á Akureyri.
Mótið hefst kl. 20, aðgangseyrir 1.500,- frítt fyrir 12 ára og yngri.
Skráningargjald 2.500,- Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri. Hjálmaskylda á svellinu.
Keppendum er heimilt að skrá fleiri en eitt hross til leiks. Riðnir 3 hringir á tölti (hægt, hraðamun og fegurðar). Tvöfallt vægi á hægatöltinu.
Æfingatími fyrir keppendur er föstudagskvöldið 19. feb. kl. 21:15 (innifalið í skráningargjaldi). Þar hafa einungis rétt á að mæta þau hross sem skráð eru til leiks með “sínum” knöpum.
Þátttökugjald greiðist á staðnum.
A og B-úrslit, aðgöngumiðahappdrætti og að móti loknu verður opið hús í TopReiterhöllinni, reiðhöll Léttisfélaga.
Um daginn verður einnig sölusýning í reiðhöll Léttis.
Nánari upplýsingar um mótið veitir Guðmundur í síma 897-3818.
Allir hjartanlega velkomnir á Bautamót 2010.
|
|
fréttatilkynning frá keppnisnefnd L.H. |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 03 febrúar 2010 11:12 |
Fyrir keppnistímabilið 2010 gilda eftirfarandi reglur um innanhússmót:
1. Almennt gilda sömu reglur og utanhúss með eftirfarandi undantekningum. Sérstaklega skal minnt á skil á Mótsskýrslu til að árangur skráist í Mótafeng og þar með inn í Worldfeng.
2. Þegar riðið er inn á völl á innanhússmótum er leyfilegt að leyfa lengri leið áður en keppni hefst, eftir því sem aðstæður leyfa.
3. Einkunnir úr innanhússmótum gilda ekki sem árangur til keppni utanhúss. Þær gilda því ekki sem lágmarkseinkunn til þátttöku í tölti á Landsmóti, ekki til þátttöku á Íslandsmóti né sem lágmarkseinkunn til þátttöku í meistaraflokki.
Reglugerð þessi fær númerið 8.3.2.1. í Lögum og reglum LH og taka gildi nú þegar.
Virðingarfyllst,
Keppnisnefnd LH
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Þriðjudagur, 02 febrúar 2010 09:26 |
KEA-mótaröðin 2010 mun hefjast þann 11. febrúar n.k. í Top Reiterhöllinni. Keppt verður í einum flokki og hefst hún á tölti. Keppt verður samkvæmt lögum og reglum LH um innanhúsmót. Skráningu fyrir fyrsta kvöldið lýkur 8. febrúar og er skráningargjald 2500 kr. fyrir hverja grein. Skráning fer fram á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 29 janúar 2010 07:47 |
|
Stjörnutölt 2010 verður haldið í Skautahöllinni Akureyri þann 20. mars.
Takið daginn frá og komið og horfið á skemmtilega keppni sem á enga sína líka.
Stjörnutöltsnefnd 2010.
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 28 janúar 2010 10:49 |
|
Búið er að uppfæra opnunnartímana í reiðhöllinni og eru þeir undir flipanum "reiðhöll"
Einnig eru komnar inn myndir frá úrvalssýningu folalda sem haldin var laugardaginn
23. janúar og eru þær undir flipanum "myndasíða"
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 51 |