|
Námskeið í bygginga - og hæfileikadómum |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 24 febrúar 2010 19:46 |
|
Við bjóðum fram tvö námskeið eina helgi í mars 27.-28. mars í Top Reiter höllinni á Akureyri, er varða annars vegar byggingadóma og hinsvegar hæfileikadóma hrossa. Taki einstaklingur bæði námskeiðin fellur staðfestingargjaldið niður á seinna námskeiðinu er svara ca 16% afslætti á námskeiðsgjaldi. Æskilegt er að skráningar berist fyrir 18. mars!
Með kveðju og þakklæti
F.h. Endurmenntunar LbhÍ
Ásdís Helga Bjarnadóttir
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 24 febrúar 2010 17:05 |
|
Í gærkvöldi var haldin Aðalfundur félagsins. Kjósa þurfti í allar stöður innan stjórnar nema gjaldkerastöðuna þar sem Jónas Kristjánsson var kosinn á síðasta aðalfundi og sitja stjórnar menni í tvö ár í senn. Auk þess var ritarastaða félagsins laus þar sem Eva Símonardóttir hætti á síðasta ári og kom Inga Bára Ragnarsdóttir úr varstjórn í hennar stað. Inga Bára var kosinn ritari félagsins í gær og þá til eins ár, þar sem hún situr út tímabilið hennar Evu.
Aðrir sem voru kosnir í stjórn félagsins eru eftir farandi. Andrea Margét Þorvaldsdóttir formaður, Baldvin Ari Guðlaugsson varaformaður og Sveinn Ingi Kjartansson meðstjórnandi. Í varastjórn voru kosnir Stefán Tryggvi Brynjarsson, Friðrik Kjartansson og Gunnar Malmquist.
Stjórnin veitti þremur félagsmönnum gull og silfur merki félagsins og voru það þeir Jón Björn Arason sem hlaut silfur merki, Stefán Erlingsson sem hlaut einnig silfur merki og Ásgeir Valdimarsson sem hlaut gull merki.
|
|
Lesa meira...
|
|
Opna Bautamótið í tölti - Úrslit |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Sunnudagur, 21 febrúar 2010 14:32 |
Opna Bautamótið í tölti fór fram í gærkvöldi í Skautahöllinni á Akureyri. Mikil þátttaka var venju samkvæmt og voru 71 hross skráð til leiks. Það var mál manna að aldrei hafi verið riðin jafnsterk úrslit á þessu móti og hrein unun á að horfa. Þorsteinn Björnsson á Ögra frá Hólum átti frábæra sýningu og brekkan var sannalega hans enda hefur líklega heyrst í næstu bæjarfélög fagnaðarlætin en dyggur stuðningshópur hans lét ekki sitt eftir liggja. Framúrskarandi hross þarna í A-úrslitnum, reiðmennskan í algjörum sérflokki og á meðal reyndari hesta í B-úrslitum komu þar yngri hross sem vöktu verulega athygli. Prúðir knapar og framúrskarandi hross einkenndu þetta níunda Bautamót í tölti.
Sölvi Sigurðarson reið þremur hestum í forkeppninni og kom þeim öllum í úrslit. Hann ákvað að ríða Glað frá Gund í A-úrslitunum en einnig náðu í úrslit þeir Straumur frá Enni með 6,60 og Gustur frá Halldórsstöðum með 6,53
Gefendur vinninga í áhorfendahappdrættinu voru Bautinn, Fákasport og eigendur stóðhestanna Eldjáns frá Ytri-Brennihóli og Þorra frá Möðrufelli.
|
|
Lesa meira...
|
|
KEA mótaröðin Tölt, myndir |
|
|
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Fimmtudagur, 18 febrúar 2010 16:55 |
|
Myndir frá KEA mótaröðinni í tölti eru komnar inn á www.pedromyndir.is
|
|
Fréttatilkynning, Fákar og Fjör |
|
|
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Miðvikudagur, 17 febrúar 2010 16:04 |
|
Fákar og fjör 10. Apríl 2010. Top Reiterhöllin á Akureyri.
Nú er undirbúningur að sýningunni Fákar og Fjör 2010. komin á fulla ferð og nú þegar er búið að tryggja að á sýninguna komi hópur af gæðingum. Afkvæmasýndir verða að minnsta kosti 2 frægir stóðhestar. Nokkur bestu Hrossaræktarbú Norðanlands hafa boðað komu sýna og margt fleira er í pípunum hjá framkvæmdanefndinni sem fundar nú ört og er með arnaraugu eftir atriðum til að skreyta sýninguna. Margt mætti hér nefna en það er verið að undirbúna auglýsingaplaggatið og á því verður flaggað stjörnum sýningarinnar. Gaman er að nefna það hér að inn á milli hestaatriða verður söngatriði á heimsmælikvarða, sagt og skrifað, en ekki er hægt að nefna nein nöfn í því sambandi en staðið verður við það að þetta söngatriði er og verður ógleymanlegt.
|
|
Lesa meira...
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Fimmtudagur, 11 febrúar 2010 11:51 |
|
Léttir minnir þá á sem ekki hafa gengið frá greiðslu vegna námskeiða félagsins að greiða fyrir þau eða semja um greiðslur fyrir 20. febrúar. Hægt er að senda tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
til að semja.
Ef ekki verður búið að greiða eða semja um greiðslur fyrir 20. febrúar mun knapinn verða afskráður af námskeiðinu.
A.T.H. að það er mjög mikilvægt að fram komi fyrir hvern er verið að geiða
Með kveðju.
Léttir
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 9 af 51 |