|
Skrifað af Andrea
|
|
Sunnudagur, 21 mars 2010 15:12 |
|
Stjörnutölt var haldið í gærkveldi og er óhætt að segja að það hafi verið frábær skemmtun. Sterkir hestar mættu til leiks og voru úrslitin æsispennandi.
Barbara Wenzl og Dalur frá Háleggsstöðum kom sá og sigraði. Viðar Bragason og Von frá Syðra-Kolugili voru valin 5 hestur í úrslit af áheyrendum. Viðar og Von stóðu sig vel og höfnuðu í 5 sætinu.
Jakob Svavar sigraði stóðhestakeppnina á Al frá Lundum og kom Magnús Magnússon og Vafi frá Ysta-mói fast á hæla hans.
Góð skemmtun var á „Geira kaffi" eftir sýninguna þar sem gestir og gangandi fluttu sig inní reiðhöllina og sungu hástöfum að hestamannasið.

Úrslit í tölti
1. Barbara Wenzl - Dalur frá Háleggsstöðum 8,5 2. Jakob Svavar Sigurðsson - Árborg frá Miðey 7,67 3. Sölvi Sigurðsson - Glaður frá Grund 7,33 4. Sigurður Sigurðsson - Hugrún frá Syðra-Garðshorni 5. Viðar Bragason - Von frá Syðra Kollugili
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Mót og víxluhátíð að Björgum |
|
|
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Miðvikudagur, 17 mars 2010 15:41 |
|
Laugardaginn 27. mars n.k. verður haldin vígsluhátíð í nýrri reiðhöll sem risin er á Björgum í Hörgárdal, Eyjafirði.
Þennan laugardag verður opið mót þar sem keppt verður í þrígangi og skeiði.
Um kvöldið verður svo "hittingur" og glaðst með bændum á Björgum yfir þessu glæsilega húsi.
Björg.pdf |
|
Skrifað af Andrea
|
|
Miðvikudagur, 17 mars 2010 10:45 |
|
Spennandi og skemmtilegt námskeið í kynbótadómum verður haldið í Top Reiterhöllinni 27-28 mars.
Sjá nánar um námskeiðið hér |
|
Skrifað af Andrea
|
|
Miðvikudagur, 17 mars 2010 09:53 |
|
Allir hestamenn eru vinsamlega beðnir að skoða þessa frétt:
ormerkingar
|
|
Lesa meira...
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Laugardagur, 13 mars 2010 13:58 |
|
12-15 febrúar tapaðist "Jollamúll" sem hékk í hesthúsinu í Reiðhöllinni.
Ef þú hefur tekið múlinn í misgripum, þá vinsamlega hafðu samband við Friðrik í 896 5309 eða skilaðu honum i hesthúsið í reiðhöllinni. Múlsins er sárt saknað.
|
|
Skrifað af Andrea
|
|
Þriðjudagur, 23 febrúar 2010 09:44 |
|
Hið árlega Stjörnutölt verður haldið í Skautahöllinni á Akureyri 20. mars n.k.
Keppni úrvalstöltara á ís og opin stóðhestakeppni 5 vetra og eldri.
Þess má geta að skráningu í stóðhestakeppnina lýkur þriðjudaginn
16. mars kl. 20:00 Skráning og upplýsingar hjá Friðrik í síma 863 5309
Veglegt aðgöngumiðahappadrætti þar sem meðal annars verður
boðið upp á folatoll undir Hrímni frá Ósi svo eitthvað sé nefnt.
Húsið opnar kl. 19:30 og keppnin hefst kl. 20:00.
Forsala aðgöngumiða er í Líflandi og Fákasporti á Akureyri.
Nú er um að gera að taka daginn frá og skella sér í Skautahöllina og horfa á úrvalstöltara etja kappi á ís.
Eitt er víst að allir fá eitthvað fyrir sinn snúð.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 7 af 51 |