|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Föstudagur, 15 febrúar 2008 15:30 |
Opna Bautamótið í tölti fer fram á laugardag 16. feb. 2008. Hér má sjá ráslista þeirra 71 keppenda sem taka þátt.
Mótið hefst kl. 20 á laugardag, opnað inn á svellið kl. 19:30 fyrir knapa. Einnig er í boði æfingatími á föstudagskvöld kl. 21:15 í Skautahöllinni á Akureyri. Þar hafa þeir einir rétt á að mæta sem hér eru skráðir til leiks, með þau hross sem skráð eru í mótið.
|
|
Lesa meira...
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Miðvikudagur, 13 febrúar 2008 15:12 |
|
Þið sem misstuð af þættinum getið heyrt hann með því að smella hérna.
Á morgun 14. febrúar kl. 15.30 verður þáttur Ragnheiðar Davíðsdóttur; Dr Rúv
á rás 1 tileinkaður tillögum að akstursíþróttasvæði í Glerárdal. Í þættinum
verður meðal annars rætt við formann Léttis og hljóðsérfræðinginn Ólaf
Hjálmarsson um áhrif á hestamennsku á svæðinu ef þessar tillögur ná fram að
ganga.
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Laugardagur, 09 febrúar 2008 21:21 |
|
Tvö reiðnámskeið verða haldin í reiðhöllinni á Akureyri á útmánuðum. Það fyrra er tveggja helga námskeið hjá Antoni Páli Níelssyni fyrir vana knapa. Námskeiðið fer fram helgarnar 4.-5. og 18.-19. apríl.
Seinna námskeiðið er á vegum reiðkennaradeildar Hólaskóla og ætlað öllum hestamönnum. Það verður haldið 9.-10 maí.
Þessi námskeið verða auslýst nánar síðar.
Fræðslunefnd Léttis
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 07 febrúar 2008 23:11 |
|
Reiðhöllin verður opin til prufu fyrir félagsmenn Léttis.
Opnir tímar verða
Laugardagsmorguninn 16.02.2008 kl 10-13
Sunnudaginn 17.02.2008 kl 13-16
|
|
Lesa meira...
|
|
Opna Bautamótið í tölti 2008 |
|
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Fimmtudagur, 07 febrúar 2008 22:18 |
Opna Bautamótið í tölti fer fram í Skautahöllinni á Akureyri, laugardaginn 16. febrúar n.k. og hefst kl. 20. Skráningargjald er kr. 2.000,- á hverja skráningu og er knöpum heimilt að skrá fleiri en eitt hross til keppninnar. Keppendur skulu hafa náð 16 ára aldri og hjálmaskylda er á svellinu.
Fyrirkomulagið er þannig að riðnir verða 3 hringir á tölti, allir upp á vinstri hönd. Einn á hægu tölti, einn á tölti með hraðamun og einn á fegurðartölti. Tvöfalt vægi er á hæga töltinu. Æfingatími fyrir keppendur verður í Skautahöllinni, föstudagskvöldið 15. feb. kl. 21:15. Þar hafa rétt á að mæta þeir keppendur sem þegar eru skráðir í mótið, með þau hross sem þar eru skráð, önnur ekki. Hestamönnum er einnig bent á að hægt að kaupa tíma í Skautahöllinni á Akureyri til æfinga og er upplagt að taka sig nokkrir saman til að leigja sér tíma í húsinu.
Greiðsla skráningargjalda fer fram á staðnum. Þeir sem nýta sér æfingatímann á föstudagskvöldinu þurfa að greiða skráningargjaldið áður en æfing fer fram.
Tekið er við skráningum í netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og í síma 462-2101 á kvöldin (Anna Guðrún). Skráningu lýkur miðvikudaginn 13. feb. kl. 22. Allar nánari upplýsingar gefur Guðmundur í síma 897-3818.
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 51 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 51 af 51 |