Auglýsingar

Úrvals þurrt hey til sölu færi fólki inn í hlöðu eða hvert sem er.

Þorbergur Aðalsteinsson (Tobbi) sími 8624991.

Click for Akureyri, Ísland Forecast Click for Akureyri, Ísland Forecast

Forsíða
Fákar og fjör Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Mánudagur, 19 apríl 2010 15:49

fakar1Óhætt er að segja að Stórsýningin Fákar og fjör hafi staðið undir væntingum.

Þrátt fyrir afföll vegna hósta og eldgoss var þetta hin besta skemmtun.

Við Léttismenn þurfum ekki að kvíða framtíðinni þar sem Léttiskrakkarnir undir stjórn Linu Eriksson sýndu mjög skemmtilega sýningu og voru vel ríðandi. Bæði atriði Léttiskrakkanna tókst vel.

Skemmtilegt var að sjá Ólaf Svansson og hans fjölskyldu sem og Baldvin Ara og Ágústu dóttur hans.

Kátir voru þeir nú Léttis-karlar í skrautreið sinni og lukkaðist hún vel og er gaman að sjá hve mörg „heima" atriði voru í sýningunni.

Nokkrar myndir eru komnar hér í "lesa meira" en von er á fleiri myndum inná www.pedromyndir.is 

Lesa meira...
 
Áríðandi tilkynning til eigenda útigangshrossa. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Sunnudagur, 18 apríl 2010 13:09
Eigendur útigangshrossa um allt land þurfa að búa sig undir verja hross sín fyrir öskufalli. Of seint er að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á.

Miðað við veðurspá fyrir næstu daga er mest hætta á öskufalli í Rangárvallasýslu en hrossaeigendur á öllu suður- og suðausturlandi þurfa að vera í viðbragðsstöðu.

Þar sem mikið öskufall verður er hrossum bráð hætta búin af því að anda að sér öskunni, drekka mengað vatn og éta hana í sig með menguðu fóðri. Því þarf að hýsa öll hross á þeim svæðum. Sé það ekki hægt þarf að flytja þau á öruggari svæði.

Forðast skal þó flutninga á fylfullum hryssum, einkum af innan við mánuður er í köstun. Sé ekki hægt að hýsa þær með góðu móti skal þeim haldið heim við hús þar sem hægt er að vatna þeim með hreinu vatni og verja fóður fyrir mengun.

Skapist hætta á langvarandi flúormengun er mikilvægast er að verja trippi í vexti því þeim er hættast við varanlegu tjóni á tönnum og beinum. Þá er fylfullum hryssum sérlega hætt við kalkskorti í blóði sem er lífshættulegt ástand.
Matvælastofnun.

 
Fákar og fjör, fréttaskot Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Fimmtudagur, 15 apríl 2010 16:09

joikonnMeðal dagskráratriða á Fákum og fjöri 2010 í TopReiterhöllinni á Akureyri, sem fram fer n.k. laugardagskvöld, er atriði þar sem fram koma niðjar Óskar frá Brún.

Glymur frá Innri-Skeljabrekku mætir til leiks sem og ungstirnið Hrímnir frá Ósi. Það er gaman að fá Hrímnir á sinn heimavöll en hann verður til afnota á svæðinu n.k. sumar.

Nú stórt og veglegt söngatriði, blandað hestum einnig, verður á boðstólnum en það er atriði í minningu Jóa Konn. Fram koma stórsöngvarar af Konnaraættinni og eru það bræðurnir Kristján, Jóhann Már og Svavar Jóhannssynir, Örn Viðar og Stefán Birgissynir og Finnur Bessi sonur Svavars. Þessir miklu barkar ætla að syngja að hætti hestamanna svo undir taki í höllinni.

Allt þetta og meira til á Fákum og fjöri á laugardaginn kemur kl. 20:30

 
Fákar og fjör, fréttaskot Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Föstudagur, 09 apríl 2010 15:33
Í aðdraganda Fáka og fjörs 2010 er gaman að segja frá því að stórgæðingurinn Alfa frá Blesastöðum mætir til leiks. Knapi á henni er Sigurstein Sumarliðason en hann mun einnig mæta með Borða frá Fellskoti. Sunnlenski norðlendingurinn (eða norðlenski sunnlendingurinn) Ólafur Örn Þórðarson kemur með Ramma frá Búlandi "heim" og eins verður þarna stórkostleg uppákoma þegar félagarnir Haukur frá Hrafnagili og knapi hans og eigandi Gísli Höskuldsson koma fram. Haukur mun vera 29 v. gamall og Gísli á áttugasta og fjórða aldursári. Margt fleira verður á boðstólnum og skjótum við inn fréttum af því í komandi viku.

Athugið. Einungis er um eina sýningu að ræða og verða seldir aðeins 800 miðar. Miðaverði er stillt í hóf kr. 2.500,- og gildir miðinn einnig að dansleiknum sem verður að sýningu lokinni í TopReiterhöllinni. Þar mun Tríó Kobba Jóns halda uppi stuðinu fram á rauða nótt. Forsala miða er í Fákasporti á Akureyri og Líflandi Akureyri strax eftir helgina.

Sjáumst sem flest kát og hress á Fákum og fjöri 2010 á Akureyri.

 
Opna Æskulýðsmót Léttis og Líflands Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Fimmtudagur, 08 apríl 2010 16:48

Opna æskulýðsmót Léttis og Líflands var haldið laugardaginn 3. apríl og lukkaðist mótið val í alla staði.

Börnin skemmtu sér vel og gekk mótið hratt fyrir sig. Að loknu móti fengu börnin pappíra frá dómurum um hvað má betur fara og hefur það mælst vel að afhenda krökkunum svona pappíra.


Til hamingju krakkar með frábært og skemmtilegt mót.

 

Úrslit voru sem hér segir:

 

Lesa meira...
 
Fákar og fjör 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Fimmtudagur, 08 apríl 2010 14:02
Fakarogfjornet2010Laugardaginn 17. apríl n.k. fer fram í TopReiterhöllinni á Akureyri stórsýningin Fákar og fjör 2010 sem er stórveisla hestamanna, nú haldin í annað sinn í glæsilegri reiðhöll Léttismanna á Akureyri.

Á hátíðinni verður margt glæsilegra atriða og má nefna:

Gígjar með afkvæmum - Hófur og Siggi - Top Reiter liðið - Jói Konn - In Memoriam - Kristján Jóhannsson, stórsöngvari - Hafsteinsstaðir - Litli-Garður/Árgerði - Hrymur með afkvæmum - Haukur frá Hrafnagili
Norðlensk hrossarækt - Stóðhestar úr Eyjafirði - “Kátir karlar” - Skeiðkeppni úrvalshesta og margt fleira.  Þá verður stórdansleikur í reiðhöllinni að hátíðinni lokinni og mun Tríó Kobba Jóns halda uppi stuðinu. Miðaverð: kr. 2500,- (miðinn gildir bæði á sýninguna og á dansleikinn). Forsala aðgöngumiða Fákasport og Lífland Akureyri. Frítt fyrir 12 ára og yngri.


 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 6 af 51

Merki Léttis

Á döfinni


There are no upcoming events currently scheduled.
Skoða dagatal
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30

Póstlistaskráning

Tengdir notendur

Það er/u 759 gestir inni
Joomla 1.5 Templates by JoomlaShine.com