Auglýsingar

Er með 5 vetra meri til sölu, rauðskjótta faðir Valur frá höskuldstöðum og móðir hennar var Ösp frá Naustum 2 sem var undan honum Snældu-blesa frá Árgerði. Merin er litið gerð en viljug. Hún er i tamningu eins og er hjá honum Atla Fúsa í breiðholtinu. Er til að skoða skipti á fjölskylduhesti/meri. Nánar upplýsingar hjá Rósu í sima 8686853.

Click for Akureyri, Ísland Forecast Click for Akureyri, Ísland Forecast

Forsíða
Hólf á Kaupvangsbökkum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Þriðjudagur, 18 maí 2010 14:09

Þeir Léttisfélagar sem eru með hólf á Kaupvangsbökkum og ætla EKKI að halda áfram með það vinsamlega sendið póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. þess efnis.

Greiðsluseðlar verða sendir út á næstu dögum vegna hagagjalda á Kaupvangsbökkum.

Haganefnd Léttis.

 

 
Reiðhjálmavíxl Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Mánudagur, 17 maí 2010 22:02

Miðvikudaginn 5. maí eftir námskeið hjá Línu rugluðust reiðhjálmar þannig að Valþór Ingi kom ekki með réttan hjálm heim.

Ef þetta á við einhvern annan líka þá vinsamlega hafðu samband við Unu eða Karl; s:4627229 eða 8991018 svo hægt sé að leiðrétta þessi mistök.

 
Beitiland í Skjardarvík Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Föstudagur, 14 maí 2010 15:32

Léttir hefur tekið á leigu land í Skjaldarvík. Í næstu viku ætla stjórn og haganefnd að setjast niður og skipuleggja landið.

Ekki er komið í ljós hvað gjaldið verður fyrir hólfin en það skýrist fljótlega. Áæltað er að hver aðili fá 1,5-2 ha lands.

Ef þú hefur áhuga á að leigja land í Skjaldarvík þá vinsamlega sendu póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  en þetta er aðeins til að sjá hve margir

hafa áhuga á landi.

 

Stjórn Léttis.

 
Beitarhólf Akureyrarbæjar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Miðvikudagur, 12 maí 2010 11:59

Samkv. samtali við umsjónamenn leigulanda Akureyrarbæjar er heimilt að sleppa veikum hestum í bæjarhólfin, en hafa skal í huga að gefa þarf í hólfin og gæta þarf að veðri.

Veðurspáin er ekki góð fyrir helgina og enn er næturfrost. Við þurfum að gæta skynsemi og sleppa ekki hrossum í hólfin nema nauðsyn sé.

Huga þarf vel að öllum girðingum áður en sleppt er í hólfin.

Stjórn Léttis.

 
Frestun á námskeiðum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Mánudagur, 10 maí 2010 16:17

Vegna mikilla veikinda í hestum á Akureyri og nágrenni hefur Léttir ákveðið að fresta kennslu á Knapamerkum 2-3-4 og 5 í 2 vikur og þá verður staðan metin hvort hægt verði að halda áfram kennslu.

Keppnisnámskeiðinu verður einnig frestað um 2 vikur og verður staðan metin þá.

Almennu reiðnámskeiðin verða felld niður og þeir sem búnir eru að greiða fá endurgreiddar 4,000 kr. þeir sem eiga eftir að borga greiða 3,000 kr. fyrir það sem búið er af námskeiðinu. Senda þarf upplýsingar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með upplýsingum um bankanúmer og fyrir hvern endurgreiðslan er.

Bóklegur tími í Knapamerki 2 sem vera átti næsta fimmtudag fellur niður og verður kenndur næsta mánudag kl. 18:00

Nánari upplýsingar eru hjá Andreu í 864 6430 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Stjórn Léttis

 
Léttir frestar komandi mótum. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Sunnudagur, 09 maí 2010 20:50

Mótanefnd, Firmakeppnisnefnd og Stjórn Léttis funduðu í dag 9.maí og ákveðið var að fresta Firmakeppni og Opna Norðurlandsmótinu sem halda átti í næstu viku. Stefnan er að halda firmakeppnina i kringum 17. júní ef heilsa hrossanna leyfir. Við sjáum til hvenær við höldum Opna Norðurlandsmótið ef það verður haldið.

Ástæða frestunarinnar eru veikindi sem herja á hestana.

Stjórn Léttis, Mótanefnd og Firmakeppnisnefnd.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 4 af 51

Merki Léttis

Á döfinni


There are no upcoming events currently scheduled.
Skoða dagatal
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30

Póstlistaskráning

Tengdir notendur

Það er/u 648 gestir inni
Joomla 1.5 Templates by JoomlaShine.com