Auglýsingar

Bjóðum upp á gistingu í íbúð með tveimur tveggja manna herbergjum með uppábúnum rúmum. Íbúðin er með öllum húsbúnaði, húsgögnum, eldavél, sjónvarpi, útvarpi, örbylgjuofn, ískáp, sturtu,handklæði og barnarúmi. Íbúðin leigist frá einni nóttu upp í fleiri eftir samkomulagi. Aðeins 10 km frá Akureyri. Stutt í sund og jólagarðinn. Verið velkomin í Eyjafjörðinn.
Elísabet 4631336/8941303 edda@krummi.is

Click for Akureyri, Ísland Forecast Click for Akureyri, Ísland Forecast

Forsíða
Reiðnámskeið Káts og Léttis Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Miðvikudagur, 16 júní 2010 09:27

Reiðskóli Léttis verður í sumar í samvinnu við hestaleiguna Kát. Léttir hefur verið í samstarfi við Kát undanfarin ár og hefur vel tekist til.

Hvert námskeið er fimm dagar frá mánudegi til föstudags og hefst alla daga kl 8.00 og stendur til kl 12.00.
Námskeiðin eru ætluð börnum á grunnskóla aldri. Krakkarnir þurfa að koma með nesti alla dagana nema á föstudögum þá grillum við fyrir þau.

Hópnum er oftast skipt í tvennt óvanir og þeir sem einhverja reynslu hafa.

Byrjendahópur er fyrir þá sem hafa litla sem enga reynslu af hestum og er byrjað á að kenna undirstöðuatriði í umgengni við hesta sem og í reiðmennsku. Í framhaldi er svo kennd áseta og stjórnun.
Fyrir þá sem eru lengra komnir er meira lagt uppúr reiðtúrum og að nemandinn nái góðri tengingu við hestinn. Verðið á þessum námskeiðum er 13.000 kr

21. til 25. júní reiðnámskeið fyrir krakka 4 til 6 ára

28. júní til 3. júlí örfá pláss laus

28. júní til 3. júlí fyrir krakka sem hafa komið á mörg námskeið eða krakka sem eru vön. Byggist fyrst og fremst á reiðtúrum, þessi námskeið kosta 10.000 kr.

Fyrir allra yngstu krakkanna (leikskólabörn) er hægt að panta hjá okkur og er þá teymt undir þeim.

Ef systkini skrá sig þá er 30% afsláttur af öðru gjaldinu. Hægt er að nota ávísanirnar frá Akureyrarbæ uppí námskeiðisgjöld.

Krakkarnir verða að klæða sig eftir veðri en við útvegum allan þann búnað sem þarf

svo sem hjálma og öryggisvesti. Námskeiðin eru eins og oftast áður á Kaupangsbökkunum

sem er ca. 5 mín akstur frá miðbæ Akureyrar. Krakkarnir verða að koma með nesti alla

dagana nema föstudaga en þá grillum við fyrir þau.

Hulda Lillý Sigurðardóttir leiðbeinandi frá Hólaskóla stjórnar námskeiðunum ásamt öðrum.

Námskeið fyrir krakka 4 til 6 ára eru einnig fyrirhuguð í sumar sem og framhaldsnámskeið fyrir krakka sem eru töluvert vön.

Nánari upplýsingar og skráning er í síma 695 7218 eða á netfangi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Gæðingakeppni Léttis Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Föstudagur, 18 júní 2010 10:09

Gæðingakeppni Léttis hefur enn á ný verið frestað. Stefnt er á að hafa hana í lok ágúst eða byrjun september.

Nánar auglýst síðar.

Mótanefnd.

 
Vinnuferð í Sörlastaði Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Sunnudagur, 13 júní 2010 21:15
4-6 júní var farin vinnuferð í Sörlastaði. Góður hópur manna og kvenna mætti á svæðið, sumir á föstudegi og aðrir á laugardegi. Á föstudag var skipt um rotþró og fór allur dagurinn í það einnig voru stærstu grjótin tekin úr veginum að Sörlastöðum en við viljum þó benda á að vegurinn er eingöngu fær jeppum. Tóbías var svo glaður yfir því að vera kominn í Sörla að hann gat ekki hugsað sér að vera þar hestlaus þannig að hann skellti sér í bæinn og riðu hann og pabbi hans yfir Bíldsárskarð um nóttina og var Tobías kominn í Sörla um 04:30 á laugardagsmorgun. Hrossin voru fersk um morguninn og var ekki að sjá að þetta ferðalag hafi gert þeim neitt nema gott. En þess má geta að enn er mikill snjór í skarðinu.
Lesa meira...
 
Hólf á Hömrum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Þriðjudagur, 01 júní 2010 19:28
Þeir félagsmenn í Létti sem eru með 1-2 hesta og hafa ekki hólf stendur til boða að nýta hólf sem félagið er með á Hömrum. Áhugasamir sendi póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. með upplýsingum um nafn, síma og fjölda hesta.

A.T.H þetta er aðeins ætlað fyrir þá sem eru með fáa hesta.

Unglingar í Létti eru velkomnir með sína hesta í unglingahólfið á Hömrum endurgjaldslaust. En það þarf að skrá sig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   engir hestar mega vera á Hömrum nema þeir hafi verið skráðir áður.

Stjórn Léttis og Haganefnd.

 
Úrtakan felld niður Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Þriðjudagur, 01 júní 2010 13:49

Eins og allir hestamenn vita verður ekki LM í sumar og því fellum við niður úrtökurnar sem halda átti 5 og 19 júní.

Mótanefnd Léttis

 
Knapamerkjum frestað áfram Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af Andrea   
Sunnudagur, 23 maí 2010 21:24

Því miður virðist ástandið á hestunum ekkert að vera að skána.

Við höfum ákveðið að fresta öllum Knapamerkjum þar til í haust. Við munum kenna bóklega tíma áfram og munum auglýsa tímana hér á heimasíðunni.

Bóklegur tími í Knapamerkjum 2 sem átti að vera á morgun fellur niður.

Stjórn Léttis

 

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 51

Merki Léttis

Á döfinni


There are no upcoming events currently scheduled.
Skoða dagatal
September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30

Póstlistaskráning

Tengdir notendur

Það er/u 748 gestir inni
Joomla 1.5 Templates by JoomlaShine.com