|
Skráning hafin í KEA mötaröðina |
|
|
|
|
Skrifað af Ritnefnd 2
|
|
Miðvikudagur, 01 febrúar 2012 10:18 |
|

Skráning er hafin fyrir Fjórgang KEA mótaraðarinnar sem fram fer fimmtudaginn 9. febrúar og er skráning á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Skráningargjaldið er 2.500 kr. fyrir hvern hest, og það þarf að leggja inná: reikn 0302-26-15841 kt: 430269-6749 (a.t.h. þetta er ekki sami reikn. og vanalega er notaður). Skráning telst ógild þar til greiðsla hefur borist.
Skráningu lýkur kl. 19:00 mánudaginn 6. febrúar. Ráslistar verða birtir þriðjudaginn 7. febrúar.
Taka þarf fram nafn knapa og kennitölu og í hvaða grein er verið að skrá í, nafn hests og IS-númer. Án þessara upplýsinga er skráningin ógild.
Mótið hefst kl. 19:00, fimmtudaginn 9. Knapafundur hefst klukkutíma fyrir upphaf móts.
Mótanefnd Léttis
AUGLÝSING

|
|
|
Folaldasýning Framfara - úrslit |
|
|
|
|
Skrifað af Ritnefnd
|
|
Þriðjudagur, 31 janúar 2012 10:20 |
|
Folaldasýning Framfara fór fram á laugardaginn í Top Reiterhöllinni á Akureyri. 27 folöld tóku þátt og urðu úrslit dagsins þannig:
Hestfolöld: 1. Neisti frá Garðshorni, F. Glymur frá Innri-Skeljabrekku. Eig. Áskell Ólafsson 2. Loki frá Litlu-Brekku, F. Pistill frá Litlu-Brekku. Eig. Vignir og Jónína 3. Taktur frá Draflastöðum, F. Prins frá Úlfljótsvatni. Eig. Tobbi og Þura Merfolöld: 1. Berglind frá Skriðu, F. Gaumur frá Auðsholtshjáleigu. Eig. Þór og Sigga 2. Prinsessa frá Neðri-Rauðalæk, F. Kopar frá Hvanneyri. Eig. Sumarliði og Stefanía 3. Demba frá Skriðu, F. Hlekkur frá Lækjamóti. Eig. Þór og Sigga
Flottasta folaldið (valið af áhorfendum): Jöfn að stigum urðu þau Berglind frá Skriðu og Loki frá Litlu-Brekku. Berglind hampaði verðlaununum eftir hlutkesti. Vegleg verðlaun voru í boði frá Fákasporti, Líflandi, VB-landbúnaði og Bústólpa.
Þökkum styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn, Framfari |
|
Námskeið með Antoni Páli Níelssyni |
|
|
|
|
Skrifað af Ritnefnd 2
|
|
Fimmtudagur, 26 janúar 2012 18:36 |
|
Reiðnámskeið fyrir lengra komna með Antoni Páli Níelsson verður haldið í Top Reiterhöllin 11-12 febrúar. Kennslufyrirkomulagið verður á þá leið að kennt verður tveimur og tveimur í einu, tvisvar sinnum á dag. 12 nemendur komast að i þetta frábæra námskeið og verður dregið ef fleiri sækja um. Umsóknir berist fyrir 6. febrúar á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Allar frekari upplýsingar veitir Matthías Jónsson í síma 899-1038. Verð á námskeiðið verður 24.000

|
|
Fréttatilkynning frá KEA mótaröðinni 2012. |
|
|
|
|
Skrifað af Ritnefnd 2
|
|
Fimmtudagur, 26 janúar 2012 10:22 |
KEA mótaröðin 2012 verður haldin í Topreiter höllinni á Akureyri með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár Ákveðnir hafa verið keppnisdagar sem og röð gangtegunda.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hópaskipting fyrir námskeiðið hjá Linu |
|
|
|
|
Skrifað af Ritnefnd 2
|
|
Mánudagur, 23 janúar 2012 15:52 |
|
Hér er komin hópaskipting fyrir námskeiðið fyrir börn og unglinga hjá Linu.
16.45-17.30 Heiðmar Örn Björgvinsson Elvar Snær Erlendsson Ísak Óli Bernharðsson Karin Thelma Bernharðsdóttir
17.30-18.15 Agnes Sara Ingólfsdóttir Maríanna Ósk Mikaelsdóttir Sunneva Kristjánsdóttir Herborg Rut Kristín Halldórsdóttir
18.15-19.00 Kolbrún Lind Malmquist Irma Ósk Jónsdóttir Kristín Ragna Tobíasdóttir Valgerður Sigurbergsdóttir |
|
Skrifað af Ritnefnd 2
|
|
Miðvikudagur, 18 janúar 2012 08:39 |
|

Léttisfélagar og aðrir hestaunnendur athugið.
Hvað er betra eftir morgungegningar eða góðan morgunreiðtúr, að sameina kaffistofuspjall hestamanna undir einu þaki! Nú á laugardaginn, 21. janúar ætlum við í Létti að halda súpuspjall klukkan 11:30. Þar verður dýrindis súpa á boðstólnum sem skeifunefndin/veitinganefndin mun kokka af alúð ofan í okkur. Öllum kostnaði verður stillt í hóf, eða um 1200-1400 krónur á manninn. Á meðan á súpunni stendur og eitthvað frameftir verður hægt að ræða við stjórn Léttis um hin ýmsustu mál og verður hún til skrafs og ráðagerða.
Kl. 11:30 mun hann Jón Birgir hjá Sjóvá vera með stuttan og mjög áhugaverðan fyrirlestur um öryggismál!
Nú er um að gera að sameina kaffistofur hestamanna í eina þennan laugardagsmorgun, fá sér góða súpu og ríða síðan út í góða veðrinu eftir hádegi.
kv Stjórn Léttis og skeifunefnd.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 77 |